
Skráningu lýkur þann 15. ágúst
10.08.2016
Stórdansleikur með Helga Björns og Reiðmönnum Vindanna
19.08.2016Ætlunin er að búa til auglýsinga og kynningarmyndbönd fyrir komandi fótboltamót með drónum og myndavélum. Viljum við fá sem flesta í mótið þar sem upptökulið frá Garðari Ólafs photos verður á staðnum og mun sjá um að koma öllum í réttan fókus.
Einnig verður reynt eftir fremsta megni að senda út mótið í beinni útsendingu en er ekki vitað hversu langt hún mun ná.
Veðurspáin lofar einnig mjög góðu fyrir daginn þannig að það er ekkert að vanbúnaði nema að skrá sig í fjörið sem fyrst því að síðasti dagur skráningar er á morgun mánudaginn 15. ágúst.
Það eru 48 kappar skráðir til leiks þegar þetta er ritað.
Norðurbær vs Suðurbær á K&G vellinum í Sandgerði föstudaginn 26. ágúst.
Skráningarformið
