John Earl Kort Hill er fjórði í röð þeirra leikmanna sem halda skallaboltanum á lofti og tók hann við boltanum af Óskari Gunnarssyni sem skallaði boltann hressilega áfram.
John E. K. Hill, betur þekktur sem Denni lögga, spilaði allan sinn feril með Reyni og lék með mfl. á árunum 1958 1973.
Denni lék í framlínunni og þótti mikill markaskorari. Hann gaf tóninn strax í sínum fyrsta mfl. leik þar sem hann skoraði og má segja að hann hafi haldið uppteknum hætti allt þar til hann setti skóna á hilluna margfrægu.