Nú er farið að styttast í næstu keppni milli Norðurbæjar og Suðurbæjar. Mótið fer fram föstudaginn 26. ágúst og að sjálfsögðu verður saltfiskveislan á sínum stað. Endilega takið daginn frá. Dagskráin mun verða með hefðbundnu sniði og Helgi Björns mun nú snúa til okkar aftur eftir 3 ára hlé. Að lokinni saltfiskveislunni mun svo verða ball í Samkomuhúsinu á vegum knattspyrnudeildar Reynis þar sem Holy B og félagar munu trylla lýðinn.
Endilega skráið ykkur tímanlega í gegnum skráningarformið hér.