Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að það verður enginn annar en Magnús Kjartan Eyjólfsson, “brekkusöngvari” og forsöngvari hljómsveitarinnar Stuðlabandsins sem mun halda uppi stuðinu í Salfiskveislu kvöldsins.
Magnús og hljómsveit hans Stuðlabandið hefur farið á kostum undanfarin ár og skipað sér sess sem ein allra besta danshjómsveit landsins.
Magnús hitaði upp á dögunum fyrir veisluna góðu með áhrifamiklum brekkusöng á þjóðhátíð í Eyjum þar sem allir sungu með og má búast við því að það verði rífandi stemming að vanda og klárlega vel tekið undir í Reynisheimilinu þetta kvöld.