
Gunnar Jarl Jónsson verður aðaldómari
08.08.2017
Veislustjóri verður Bjarni Töframaður Baldvinsson
09.08.2017Það verður sannkölluð sveitaballastemning í samkomuhúsinu í Sandgerði þegar Stuðlabandið mætir í öllu sínu veldi.
Dansleikurinn verður haldinn eftir saltfiskveisluna góðu föstudagskvöldið 25. ágúst.
Stuðlabandið er ein vinsælasta ballhljómsveit landsins í dag.
Alvöru íslenskt sveitaball lýsir sveitinni fullkomlega en þessir gleðigjafar hafa undanfarin ár vakið gríðarlega athygli fyrir stórgóða frammistöðu á dansleikjum víðvegar um landið.
Hljómsveitin er þekkt fyrir frábæra spilagleði, líflega sviðsframkomu og gott lagaval sem er hannað til þess að halda gestum á dansgólfinu allan tímann.
Það er Knattspyrnudeild Reynis sem heldur dansleikinn.
Miðaverð og sala nánar auglýst síðar.
