Dómarar á mótinu í ár eru í allra fremstu röð að vanda.
Það verða þeir Þorvaldur Árnason milliríkjadómari og Arnar Þór Stefánsson landsdómari og stjörnulögfræðingur sem sjá um dómgæsluna þegar stórveldin takast á í móti þeirra bestu.
Þorvaldur er mótinu kunnugur en hann hefur dæmt tvisvar áður og staðið sig með miklum sóma.
Arnar Þór hefur ekki dæmt í mótinu áður og bjóðum við hann sérstaklega velkominn til leiks.
Það þarf ekki að fara í miklar málalengingar með það að við væntum mikils af þeim félögum
Nánari uppl um mótið er að finna hér www.nordursudurbaer.is