Það verður stórdansleikur í samkomuhúsinu í Sandgerði föstudagskvöldið 30. ágúst þegar vinsælasta danshljómsveit landsins Stuðlabandið mætir funheit beint af helstu bæjarhátíðum landsins.
Það verður stiginn trylltur dans fram á rauða nótt
Eitthvað sem enginn Suðurnesjamaður getur misst af.
Það er Knattspyrnudeild Reynis sem heldur viðburðinn.
Miðasala nánar auglýst síðar.