Það styttist óðum í keppni Norðurbæjar og Suðurbæjar.
Mótið fer fram að þessu sinni föstudaginn 30. ágúst og að sjálfsögðu er hin eina sanna saltfiskveisla á sínum stað.
Dagskráin er í mótun og verður hún birt á næstunni.
Að lokinni saltfiskveislu/skemmtikvöldi fer fram dansleikur í Samkomuhúsinu á vegum knattspyrnudeildar Reynis þar sem vinsælasta danshljómsveit landsins Albatross mun halda uppi stemmningunni fram á rauða nótt.
Endilega takið daginn (og nóttina) frá.
Skráið ykkur tímanlega í gegnum skráningarformið með því að smella hér