Það styttist óðum í keppni Norðurbæjar og Suðurbæjar.
Mótið fer fram að þessu sinni föstudaginn 25. ágúst og verður saltfiskveislan á sínum stað.
Dagskráin verður birt á næstu dögum.
Við bjóðum stelpur sérstaklega velkomnar til leiks þar sem ætlunin er að hafa tvö kvennalið sem keppa á móti hvort öðru
Að lokinni saltfiskveislu/skemmtikvöldi fer fram dansleikur í Samkomuhúsinu á vegum knattspyrnudeildar Reynis þar sem vinsælasta danshljómsveit landsins Stuðlabandið mun halda uppi stemmningunni fram á rauða nótt.
Endilega takið daginn (og nóttina) frá.
Skráið ykkur í gegnum skráningarformið með því að smella hér