Það verður öllu tjaldað til á fótboltaviðburðinum Norðurbær vs Suðurbær
Hláturtaugar verða klárlega þandar til hins ýtrasta í saltfiskveislu kvöldsins því það er enginn annar en Pétur Jóhann Sigfjúúúúúúúússon sem stígur á stokk
Pétur þarf ekki að kynna sérstaklega en hann vann keppnina Fyndnasti maður Íslands 1999 og hefur skemmt landanum með allskonar fíflagangi allar götur síðan svo við notum hans eigin orðræðu.
Veislan verður haldin í félagsheimili Reynis þann 25. ágúst
Rétt er að árétta að saltfiskveislan er eingöngu ætluð keppendum og mökum þeirra sem skrá sig í fótboltamótið sem fram fer sama dag á Brons vellinum
Heimasíða mótsins er nordursudurbaer.is