
Ágúst Þór Brynjarsson mætir með gítarinn
17.08.2026Vegna mikillar eftirspurnar eftir miðum í saltfiskveisluna sem tengist viðburðinum Norðurbær vs Suðurbær fótboltamótinu, og mikillar útsjónarsemi við uppröðun í salnum, þá höfum við ákveðið að selja einnig aðgöngumiða sem gilda eingöngu í veisluna.
Þátttakendur í fótboltamótinu Norðurbær vs Suðurbær og makar þeirra ganga að sjálfsögðu fyrir en það verður samt sem áður pláss fyrir fleiri veislugesti í húsinu.
Saltfiskveislan verður í Reynisheimilinu föstudagskvöldið 28. Ágúst
Dagskrá ca:
19:00 Húsið opnar með fordrykk
19:30 Sissi veislustjóri býður fólk velkomið
20:00 Veisluborð að hætti Magga Þóris
21:00 Verðlaunaafhending, uppboð, happdrætti
22:15 Ágúst Þór brekkusöngvari
Miðaverði er stillt í hóf, kr 6.000
Hægt að bóka með því að senda póst á [email protected] eða hringja/senda skilaboð í síma 8631795
Þar gildir fyrstir koma fyrstir fá 😊
Matseðill kvöldsins:
Strangheiðarlegt veisluborð
Hefðbundinn saltfiskur með kartöflum og rófum ásamt hvítlauks-smjörbræðingnum fræga, hömsum og þrumara.
Spánskur Bacalaó, saltfiskréttur
Plokkfiskur
Innbökuð og grafin bleikja með sósum og tilheyrandi.
Þeir sam vilja taka þátt í fótboltamótinu geta skráð sig hér
Allt um viðburðinn á heimasíðu viðburðarins nordursudurbaer.is
