Það er með stolti sem viðburðurinn Norðurbær/Suðurbær kynnir til leiks hinn eina sanna Jón Jónsson.
Jón þarf engrar sérstakrar kynningar við
Það einfaldlega vita allir hver maðurinn er og hvers hann er megnugur.
Tilhlökkunin er sjálfsagt mikil hjá keppendum að mæta Jóni á vellinum og geta tekið aðeins á honum, sumir sjá kannski fyrir sér að tækla hann hressilega upp í stúku
Við slökkvum í þeirri fantasíu hér með því Jón ætlar sér að blanda geði með veislugestum í saltfiskveislunni góðu og tekur að sjálfsögðu gítarinn með.
Þetta verður partý aldarinnar
Við hvetjum keppendur til að skrá sig til leiks í mótinu, það er hætt við því að komist færri að en vilja í veisluna um kvöldið.
Keppendur og makar þeirra ganga fyrir
Einnig hvetjum við öll þau sem tóku þátt síðustu tvö ár að mæta í sama keppnisbúning og spara sér 2.000 kr