Fótboltaveislan Norðurbær-Suðurbær fer fram í fimmtánda sinn föstudaginn 30. ágúst á Bronsvellinum í Sandgerði og eru 74 þáttakendur skráðir þegar þetta er ritað
Kl 14:30 Mæting í Reynisheimilinu þar sem keppnistreyjur verða afhentar að venju
Endurfundir, kaffi og létt upphitun.
Kl 15:20 Gengið inn á völlinn fylktu liði við undirspil Meistaradeildar lagsins og Jóa Útherja í flutningi Ómars Ragnarssonar, einstök upplifun.
Myndataka liða.
Kl 15:30 Flautað til leiks þar sem þeir keppendur sem skráðu sig til leiks í vítaspyrnum hefja keppni. Þar næst fer fram leikur gæðinga og þar á eftir leikur hryssa og fola á sama tíma. Verði liðin jöfn að stigum fer fram vítakeppni til að ákvarða sigurvegara.
Leiktími 2×15 til 20 mínútur fer eftir veðri og úthaldi 🙂
Dómarar verða milliríkjadómarinn Þorvaldur Árnason og landsdómarinn Arnar Ingi Ingvarsson.
Allir keppendur fá mánaðarskammt af Lýsi og liðamíni í boði Lýsis hf og fernu af Hleðslu frá MS til að hlaða byssurnar aftur.
Kl 17:30 Móti lokið og keppendur ættu að hafa góðan tíma til að sturta sig og skipta yfir í betri fötin fyrir saltfiskveisluna góðu.
Kl 18:45. Húsið opnar
Kl 19:15. Hátíðin sett.
Matseldin verður í öruggum höndum Magnúsar Þórissonar og hans fólks á Réttinum. Það verður framreiddur hefðbundinn saltfiskur með kartöflum, rófum ásamt hvítlauks-smjörbræðingnum fræga, hömsum og þrumara. Þá verður í boði spánskur Bacalao, saltfiskréttur að spænskum sið. Plokkfiskurinn verður á sínum stað ásamt innbakaðri og grafni bleikju með sósum og tilheyrandi meðlæti. Sannkallað sælkerahlaðborð.
Verðlaunaafhendingar, gamanmál að hætti hússins þar sem söngur og gleði ráða ríkjum.
Örvar Þór Kristjánsson verður með uppistand
Hinn eini sanni Jón Jónsson mætir með gítarinn og góða skapið
Eftir viðburðinn verða rútuferðir í boði Margrétar Örnu Eggertsdóttur eiganda Ferðaþjónustu Reykjaness upp í samkomuhús þar sem hljómsveitin Stuðlabandið mun halda uppi fjörinu eitthvað fram á nótt.
Veislugestir fá miðann á dansleikinn á forsöluverði í veislunni
Stuðlabandið er vinsælasta ballhljómsveit landsins í dag en hljómsveitin mætir funheit af nokkrum af stærstu hátíðum landins. Það verður erfitt að slíta sig af dansgólfinu því bandið er þekkt fyrir mikla keyrslu og brjálað stuð.
Við minnum á að hverfin verða aftur í sömu búningum þ.e.a.s. Norðurbær í hvítum og Suðurbær í rauðum. Viljum við leggja sérstaka áherslu á og hvetja alla þá sem hafa tekið þátt allavega síðustu tvö ár að mæta með gamla búninginn og spara sér 2.000 kallinn. Þeir búningar eru ekki með ártali á.
Sjá nánar um mótið á www.nordursudurbaer.is