Dómararnir sem dæma í hinu árlega fótboltamóti Norðurbær vs Suðurbær eru ekki af verri endanum
Það eru þeir Þorvaldur Árnason alþjóðadómari og Arnar Ingi Ingvarsson landsdómari sem verða með flautuna að þessu sinni
Þorvaldur er mótinu vel kunnugur þar sem hann hefur dæmt það í nokkur ár við góðan orðstír en þetta verður frumraun Arnars Inga og bjóðum við þá félaga sérlega velkomna í Sandgerði.
Flautað verður til leiks á Bronvellinum kl 15:30 föstudaginn 30. ágúst nk
Seinna um kvöldið verður svo hin margrómaða saltfiskveisla þar sem gleðin verður við völd
Hinn eini sanni Jón Jónsson ICEGUY mætir með gítarinn og stjórnar fjöldasöng