Það er ánægjulegt að segja frá því að enn eitt árið mun Margrét Arna Eggertsdóttir eigandi Ferðaþjónustu Reykjaness bjóða veislugestum viðburðarins Norðurbær vs Suðurbær, rútuferðir án endurgjalds upp í samkomuhús, að saltfiskveislu lokinni, þar sem fram fer stórdansleikur með hljómsveitinni Stuðlabandinu.
Veislugestir geta keypt aðgöngumiða á ballið, á forsöluverði, í Saltfiskveislunni.
Það er Knattspyrnudeild Reynis sem heldur dansleikinn.
Nánari uppl um mótið er að finna hér