Fótboltaveislan Norðurbær-Suðurbær fer fram í fjórtánda sinn föstudaginn 25. ágúst á Brons vellinum í Sandgerði
Kl 14:30 Mæting í Reynisheimilinu þar sem keppnistreyjur verða afhentar að venju.
Endurfundir, kaffi og létt upphitun.
Kl 15:15 Gengið inn á völlinn fylktu liði við undirspil Meistaradeildar lagsins og Jóa Útherja í flutningi Ómars Ragnarssonar, einstök upplifun.
Myndataka liða.
Kl 15:30 Flautað til leiks þar sem þeir keppendur sem skráðu sig til leiks í vítaspyrnum hefja keppni. Þar næst fer fram kvennaleikurinn og þar á eftir leikur gæðinga og fola á sama tíma. Verði liðin jöfn að stigum fer fram vítakeppni til að ákvarða sigurvegara.
Leiktími 2×15 til 20 mínútur fer eftir veðri og úthaldi 🙂
Dómarar verða milliríkjadómarinn Þorvaldur Árnason og landsdómarinn Arnar Þór Stefánsson.
Allir keppendur fá mánaðarskammt af Lýsi og liðamíni í boði Lýsis hf og fernu af Hleðslu frá MS, gott til að hlaða byssurnar aftur.
Kl 17:30 Móti lokið og keppendur ættu að hafa góðan tíma til að sturta sig og skipta yfir í betri fötin fyrir saltfiskveisluna góðu.
Kl 18:45. Húsið opnar
Kl 19:15. Hátíðin sett.
Matseldin verður í öruggum höndum Magnúsar Þórissonar og hans fólks á Réttinum. Það verður framreiddur hefðbundinn saltfiskur með kartöflum, rófum ásamt hvítlauks-smjörbræðingnum fræga, hömsum og þrumara. Þá verður í boði spánskur Bacalao, saltfiskréttur að spænskum sið. Plokkfiskurinn verður á sínum stað ásamt innbakaðri og grafni bleikju með sósum og tilheyrandi meðlæti. Sannkallað sælkerahlaðborð.
Pétur Jóhann Sigfússon fer á kostum eins og honum einum er lagið
Verðlaunaafhendingar, gamanmál að hætti hússins þar sem söngur og gleði ráða ríkjum.
Hápunkti kvöldsins verður náð þegar Magnús Kjartan Eyjólfsson “brekkusöngvari” og söngvari hljómsveitarinnar Stuðlabandsins mætir með gítarinn í fjöldasöng og gleði
Eftir viðburðinn verða rútuferðir í boði Margrétar Örnu Eggertsdóttur eiganda Ferðaþjónustu Reykjaness upp í samkomuhús þar sem hljómsveitin Stuðlabandið mun halda uppi fjörinu eitthvað fram á nótt.
Veislugestir fá miðann á dansleikinn á forsöluverði í veislunni
Stuðlabandið er vinsælasta ballhljómsveit landsins í dag en hljómsveitin mætir funheit af nokkrum af stærstu hátíðum landins. Það verður erfitt að slíta sig af dansgólfinu því bandið er þekkt fyrir mikla keyrslu og brjálað stuð.
Sjá nánar um mótið á www.nordursudurbaer.is