Fótboltaveislan Norðurbær-Suðurbær fer fram í þrettánda sinn föstudaginn 26. ágúst á Blue-vellinum í Sandgerði.
Kl 15 Mæting í Reynisheimilinu þar sem keppnistreyjur verða afhentar að venju.
Endurfundir, kaffi og létt upphitun.
Kl 15:50 Gengið inn á völlinn fylktu liði við undirspil Meistaradeildar lagsins og Jóa Útherja í flutningi Ómars Ragnarssonar, einstök upplifun.
Myndataka liða.
Kl 16 Flautað til leiks þar sem þeir keppendur sem skráðu sig til leiks í vítaspyrnum hefja keppni. Þar næst fer fram leikur gæðinga og fola á sama tíma. Verði liðin jöfn að stigum fer fram vítakeppni til að ákvarða sigurvegara.
Leiktími 2×15 til 20 mínútur fer eftir veðri og úthaldi 🙂
Dómarar verða milliríkjadómarinn Þorvaldur Árnason og landsdómarinn Arnar Þór Stefánsson.
Allir keppendur fá mánaðarskammt af Lýsi og liðamíni.
Kl 18 Móti lokið og keppendur ættu að hafa góðan tíma til að sturta sig og skipta yfir í betri fötin fyrir saltfiskveisluna góðu.
Kl 19:15. Húsið opnar
Kl 19:45. Hátíðin sett.
Matseldin verður í öruggum höndum Magnúsar Þórissonar og hans fólks á Réttinum. Það verður framreiddur hefðbundinn saltfiskur með kartöflum, rófum ásamt hvítlauks-smjörbræðingnum fræga, hömsum og þrumara. Þá verður í boði spánskur Bacalao, saltfiskréttur að spænskum sið. Plokkfiskurinn verður á sínum stað ásamt innbakaðri og grafni bleikju með sósum og tilheyrandi meðlæti. Sannkallað sælkerahlaðborð.
Verðlaunaafhendingar, gamanmál að hætti hússins þar sem söngur og gleði ráða ríkjum.
Uppistandarinn, pistalhöfundurinn og Njarðvíkingurinn Örvar Þór Kristjánsson kitlar hláturtaugarnar
Stemmarinn nær eflaust hámarki þegar Magnús Kjartan Eyjólfsson “brekkusöngvari” og söngvari hljómsveitarinnar Stuðlabandsins stígur á stokk.
Eftir viðburðinn verða rútuferðir í boði Margrétar Örnu Eggertsdóttur eiganda Ferðaþjónustu Reykjaness upp í samkomuhús þar sem hljómsveitin Stuðlabandið mun halda uppi fjörinu fram á rauða nótt.
Veislugestir fá miðann á dansleikinn á forsöluverði í veislunni
Stuðlabandið er vinsælasta ballhljómsveit landsins í dag en hljómsveitin mætir funheit nánast beint af þjóðhátíð. Það verður erfitt að slíta sig af dansgólfinu því bandið er þekkt fyrir mikla keyrslu og brjálað stuð.
Við eigum svooo skilið að skemmta okkur feitt þennan dag, langt fram á nótt
Eitthvað sem enginn má missa af.
Sjá nánar um mótið á www.nordursudurbaer.is