Fótboltaveislan Norðurbær-Suðurbær fer fram í ellefta sinn föstudaginn 24. ágúst á Sandgerðisvelli.
Kl 15 Mæting í Reynisheimilinu þar sem keppnistreyjur verða afhentar að venju.
Endurfundir, kaffi og létt upphitun.
Kl 15:50 Gengið inn á völlinn fylktu liði við undirspil Meistaradeildar lagsins og Jóa Útherja í flutningi Ómars Ragnarssonar, einstök upplifun.
Myndataka liða.
Kl 16 Flautað til leiks þar sem þeir keppendur sem skráðu sig til leiks í vítaspyrnum hefja keppni. Þar næst fer fram leikur gæðinga, þar á eftir fara fram tveir leikir trippa og fola á sama tíma.
Dómarar verða Fifa-dómararnir Þorvaldur Árnason og Gunnar Jarl Jónsson besti dómari pepsi-deildarinnar undanfarin ár.
Allir keppendur fá mánaðarskammt af Lýsi og liðamíni.
Kl 18 Móti lokið og keppendur ættu að hafa góðan tíma til að sturta sig og skipta yfir í betri fötin fyrir saltfiskveisluna góðu.
Kl 19:15. Húsið opnar
Kl 19:45. Hátíðin sett.
Veislustjóri og trúbador saltfiskskvöldsins verður Sveinbjörn nokkur Grétarsson betur þekktur í dag sem trúbadorinn Bjössi greifi.
Hann er gítarleikari, söngvari, meðlimur og stofnandi hljómsveitarinnar Greifarnir og hefur verið í henni frá stofnun árið 1986 til dagsins í dag.
Bjössi er höfundur fjölmargra laga eins og td Frystikistulagið (sem hann syngur sjálfur) og Útihátíð.
Hefur hann um árabil leitt brekkusöng um verslunarmannahelgina í Kópavogi við frábærar undirtektir.
Við komum því klárlega ekki að tómum kofanum hjá Bjössa greifa þegar kemur að tónlist og að halda uppi góðri stemmingu.
Saltfiskurinn klár á borðum og er það Örn Garðarson matreiðslumeistari og eigandi Soho veisluþjónustu sem sér um að matreiða kræsingarnar. Mun hann bjóða upp á 10-15 ára afmælisgulan fyrir lengra komna, léttsaltaðan, afmælissaltfiskrétt frá Katalóníu a‘la Örn, hefðbundið meðlæti eins og kartöflur, rófur, hvítlaukssmjörbræðinginn fræga, þrumara ofl.
Verðlaunaafhendingar, gamanmál að hætti hússins þar sem söngur og gleði ráða ríkjum.
Veglegur happdrættisvinningur sem dreginn verður úr aðgöngumiðum veislugesta.
Eftir viðburðinn verða rútuferðir í boði Margrétar Örnu Eggertsdóttur eiganda Ferðaþjónustu Reykjaness upp í samkomuhús þar sem hljómsveitin Stuðlabandið mun halda uppi fjörinu fram á rauða nótt.
Stuðlabandið er ein vinsælasta ballhljómsveit landsins í dag. Alvöru íslenskt sveitaball lýsir sveitinni fullkomlega en þessir gleðigjafar hafa undanfarin ár vakið gríðarlega athygli fyrir stórgóða frammistöðu á dansleikjum víðvegar um landið. Hljómsveitin er þekkt fyrir frábæra spilagleði, líflega sviðsframkomu og gott lagaval sem er hannað til þess að halda gestum á dansgólfinu allan tímann.
Veislugestir fá miðann á dansleikinn á kr 2500 á hurð.