Það eru ekki nema rétt rúmlega 110 dagar í mót og orðið tímabært að hita aðeins upp fyrir mótið.
Af tilefni 10 ára afmæli viðburðarins þá þá skelltum við í smá upphitunarmyndband sem var tekið upp og unnið af Garðar Ólafs Photography á síðasta móti og er óhætt að segja að vel hafi tekist til.
Við áhorfun eiga eflaust margir eftir að upplifa spennuþrungið andrúmsloftið og stemminguna sem jafnan er á K&G vellinum þegar HVERFIN mætast.
Hallið ykkur aftur í stólnum, stillið á HD þeir sem þurfa, hækkið almennilega í græjunum og njótið í botn.