Að venju fer fram keppni milli Norðurbæjar og Suðurbæjar í knattspyrnu á Sandgerðisdögum. Reynismenn eru hvattir til að finna skóna uppi í hillu og byrja að pússa hið snarasta því herlegheitin bresta á fyrr en margan grunar, nánar tiltekið föstudaginn 27. Ágúst.
Spilað verður í tveimur aldursskiptum deildum, yngri deild er fyrir 30 ára og eldri og betri deild er fyrir leikmenn í kringum 50 ára og eldri.
Mæting er kl. 15:00 í Reynisheimili, mótið hefst kl. 16:00 og lýkur keppni um kl. 18:00. Keppnisfyrirkomulag verður með örlítið breyttu sniði en áður en það verður nánar auglýst á allra næstu dögum.
Mótinu verður slitið með flottri veislu sem fer fram í sal Reynisheimilisins. Húsið opnar kl. 20:00. Nánari dagskrá verður auglýst mjög fljótlega en í grunninn er um að ræða góðan mat, skemmtilegar sögur, viðurkenningar og lifandi tónlist.
Mótsgjald er aðeins 6.500 kr og innifalið í gjaldinu er réttur til þátttöku í knattspyrnumótinu, treyja með númeri og Reynismerki, gjöf frá styrktaraðila og aðgangur að kvöldskemmtun. Makar eru að sjálfsögðu velkomnir í veisluna og kostar aðeins 2.500 kr fyrir makann. Liðum verður skipt upp í hverfislitina gulan, grænan, bláan og rauðan líkt og á síðasta ári.
Allur ágóði af mótinu rennur til Knattspyrnufélagsins Reynis og að þessu sinni mun ágóðinn renna óskiptur til kaupa á borðum, stólum og borðbúnaði fyrir salinn í Reynisheimilinu. Nú er tímabært að salurinn verði gerður glæsilegur til framtíðar í tilefni af því að félagið er 75 ára gamalt á þessu ári.
Allir þeir sem skrá sig eru hvattir til að afla styrktarlínu frá fyrirtæki að upphæð á bilinu 5.000-10.000 krónur. Nafn viðkomandi fyrirtækis birtist á einblöðungi sem borinn verður í öll hús í Sandgerði rétt fyrir mótið þar sem mótið verður auglýst og fólk hvatt til að mæta og styðja sín lið í keppninni. Það skal sérstaklega tekið fram að þetta er ekki skylda, aðeins vinsamleg tilmæli til þátttakenda. Margt smátt gerir eitt stórt.
Aldurstakmark er 30 ár, þ.e. viðkomandi þarf að verða þrítugur á árinu. Þeir leikmenn sem spilað hafa mótsleik í meistaraflokki á vegum KSÍ á árinu eru ekki gjaldgengir.
Dagskráin mun mótast frekar fram að Sandgerðisdögum og einnig mun þátttakendalisti uppfærast reglulega fram að móti.
Endilega takið daginn frá og tilkynnið þátttöku sem allra fyrst því tíminn líður ótrúlega hratt og það auðveldar allan undirbúning ef menn skrá sig snemma til leiks. Við viljum biðja allt Reynisfólk nær og fjær að hjálpa okkur að smala sem flestum á mótið og leggja sitt af mörkum til að gera daginn ógleymanlegan, sendið tölvupóst eða hringið í gömlu liðsfélagana, stuðningsmennina, stjórnarmennina o.s.frv. Muna það einnig að þegar þið hvetjið menn til að mæta og taka þátt: Þá er getuleysið fyrirgefið en viljaleysið ekki.
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 20. Ágúst, eftir þann dag þarf nafnalistinn að vera fullmótaður vegna merkinga á treyjum.