Reglur

Reglur mótsins.

1.
Norðurbær – Suðurbær er fyrir knattspyrnumenn frá Sandgerði 30 ára og eldri. Verði menn þrítugir á árinu teljast þeir gjaldgengir. Þeir leikmenn sem spilað hafa mótsleik í meistaraflokki á vegum KSÍ á árinu eru ekki gjaldgengir.

2.
“Knattspyrnumaður” frá Sandgerði er sá sem með einhverjum hætti hefur tengst knattspyrnu í Sandgerði. Innan þess ramma eru m.a. stuðningsmenn, leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn. Það eitt að hafa hugsað til Reynis Sandgerði á jákvæðan hátt er einnig næg ástæða fyrir mætingu.

3.
Þátttakendur skulu skrá sig hjá undirbúningsnefnd og verða gjaldgengir eftir að hafa innt af hendi mótsgjald.  Allur ágóði af mótinu rennur til grasrótarstarfs Knattspyrnudeildar Reynis.

4.
Mótið er tvískipt þar sem annarvegar verður keppt í 7 manna bolta þvert á völlinn og hinsvegar einstaklings og/eða liðakeppni í vítaspyrnukeppni.

Þeir sem skrá sig til keppni í vítaspyrnum mega ekki taka þátt í fótboltanum og sömuleiðis gilda sömu reglur um þá sem skrá sig til keppni í fótboltanum þ.e. mega ekki taka þátt í vítakeppninni.

5.
HÁTTVÍSI, PRÚÐMENNSKA OG SAMBABOLTI er yfirskrift mótsins. Leikmenn skulu leitast við að forðast allt það háttalag sem getur stefnt líkamlegri og andlegri heilsu andstæðinga og  samherja í hættu, leikmenn skulu umsvifalaust viðurkenna fyrir dómara hafi þeir gerst brotlegir við knattspyrnulög og leikmenn skulu draga fram alla þá kunnáttu í knattleikni sem þeir hafa viðað að sér á ferlinum til þess að skemmta áhorfendum hið mesta.

Þeir sem koma með því hugarfari að tækla allt sem hreyfist verða útilokaðir frá keppni næstu 10 ár en hafa mætingarskyldu og verða skráðir í sjósund á meðan bannið er í gildi.

Í stuttu máli er sem sagt bannað að tækla og brúka munn.

6.
Mótsstjórn hefur alvald um keppnisfyrirkomulag og hefur búið til þær reglur sem stuðst er við. Fyrirkomulag á keppni hverju sinni getur þó miðast af þátttöku hverju sinni og hefur stjórnin fullt vald til breytinga með engum fyrirvara ef þurfa þykir.

Fullt tillit er tekið til allra athugasemda eftir hvert mót fyrir sig og gerðar breytingar ef þurfa þykir. Mótsstjórn skal hafa til hliðsjónar hvar menn voru/eru búsettir í Sandgerði, þ.e. skipta liðum upp þannig að sem flestir norðurbæjarmenn verði saman og að sem flestir suðurbæjarmenn verði saman. Mótsstjórn ákveður einnig í hvorum litnum liðin spila í en fyrirfram skal gengið út frá því að liðin skiptist á litum ár hvert. Litir skulu ávalt miðast við liti á aðal og varabúningum meistaraflokks Reynis hverju sinni.

7.
Keppt er um hinn glæsilega Hverfabikar sem Siggi í Ísspor gaf mótinu árið 2010.

Fyrirliði elsta sigurliðsins ásamt elsta þáttakenda þess liðs munu veita honum viðtöku fyrir hönd síns hverfis og er gripurinn afhentur í Saltfiskveislunni sem fram fer síðar um kvöldið.

Samanlagður stigafjöldi úr viðureignum milli hverfanna ákvarðar sigurvegarann. Verði hverfin jöfn að stigum verður gripið til vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara. Markatala gildir ekki þar sem dómarar hafa rúmar heimildir til að gera leiki jafnari ef þeim sýnist svo. (t.d. ef annað liðið er að vinna með 6 marka mun og leikurinn rétt hálfnaður).

Þetta er einróma ákvörðun mótsstjórnar og henni verður ekki hnikað.

8.
Leikið er á minnivöllum (þvert á hálfan leikvanginn). Spilaður er sjö manna bolti með einum markverði og sex útileikmönnum. Hvert lið skal skipað að minnsta kosti 8 leikmönnum, s.s. einn markvörður og sex útileikmenn. Leiktíminn er 2 x 20 mínútur.

Fyrirkomulagið verður þannig að spilað er í þremur aldursskiptum hópum, yngstir, miðaldra og elstir. Fjöldi þátttakenda í öllum aldurshópum skal vera sem jafnastur. Fyrst spila yngri hóparnir á sitthvorum vellinum og síðan spilar elsti hópurinn lokaleikinn. Markmiðið er að allir fái að spila sem jafnast í hverju liði þannig að allir verði sáttir. Hvert lið skal hafa liðstjóra og vatnsbera, það eru tilvalin hlutverk fyrir þá sem ekki treysta sér lengra en að hliðarlínu en er skylt að vera í keppnistreyju.

Elsti leikmaður hvers liðs er fyrirliði liðsins.

Mótsstjórn hefur heimild til þess að taka inn yngri leikmenn til að fylla upp í lið ef þörf er á.

Leikjafyrirkomulagið getur farið eftir þátttöku og aldurssamsetningu.

Vítaspyrnukeppnin fer fram áður en fyrsti leikur hefst.

9.
Í vítaspyrnukeppni er um útsláttarform að ræða og fer eftir þáttökufjölda hvort um einstaklings og/eða hverfakeppni verður að ræða nema bæði fari fram.

Dómari ákveður hver byrjar og skulu þáttakendur skiptast á að spyrna þar til einn stendur eftir sem sigurvegari og verður hann krýndur Vítakóngur.

Verði góð þáttaka verður einnig keppt í hverfakeppni og verða sigurverðlaun einnig veitt. Fari hverfakeppni fram þá getur sami leikmaður getur ekki spyrnt aftur fyrr en allir samherjar hans hafa spyrnt. Sé jafnt eftir að allir leikmenn hafa spyrnt, skal vítaspyrnukeppninni fram haldið með einni spyrnu á hvort hverfi, þar til úrslit fást.

10.
Þeir leikmenn í eldri deild sem telja sig vera í of góðu líkamlegu formi eða hreinlega í ofþjálfun er heimilt að skrá sig til keppni í yngri deildinni en fá ekki forgjöf.

Leikmönnum í yngri deild er ekki heimilt að skrá sig í keppni í eldri deild.

11.
Dómarar hafa rúmar heimildir og geta spjaldað leikmenn að vild fyrir grófar tæklingar, ljótt orðbragð, eða slæma framkomu og getur viðkomandi fengið þá 2 mínútna brottvísun. Viðkomandi er sem sagt rekinn út af í 2 mínútur til að kæla sig niður, en annar liðsfélagi má koma strax inná og síðan getur viðkomandi komið aftur inn á eftir það.

Við minnum á að dómarar geta einnig jafnað í liðum með fækkun eða fjölgun leikmanna sé einsýnt að annað liðið sé að valta yfir hitt.

12.
„Læknir“ verður staðnum og verður hann einkennisklæddur í hvítan slopp með rauðum kross. Um leið og einhver meiðist, fer í fýlu eða örmagnast, þá mætir læknirinn með „orkudrykk“. Honum er heimilt að fara inná völlinn og „lækna“ leikmenn hvenær leiks sem er, án afskipta dómara, og verður hann skipaður af mótsnefnd hverju sinni.

13.
Sérstaklega skal tekið fram að sömu reglur gilda um sendingar til markvarðar og gilda í deildarkeppnum á vegum KSÍ.

14.
Leikið verður á aðalleikvangi Reynisfélagsins.

15.
Ekki er heimilt að spila á grasskóm í keppninni.

16.
Allir leikir skulu fara fram skv. knattspyrnulögum KSÍ og reglugerð KSÍ um knattspyrnumót, nema annars sé getið í reglum þessum.